Aðalvalmynd

Klepparar

Auglýsing

Strákarnir

Fólkið

Leit

Gagnasafn

It´s a combination for disaster ;)Elísa Björk Jónsdóttir

Það er laugardagskvöldið 20. mars. Börnin mín 3 eru inní herberginu sínu, tvö eldri í PS2 og litli bróðir fær að horfa á svona rétt á meðan mamman hendir kvöldmatnum saman og inní ofn. Við breyttum smá útaf vananum þessa helgina. Venjulega höldum við svokölluð kósýkvöld á laugardögum en sökum söngvakeppninnar X-Factor undanfarið ákváðum við að hafa kósýkvöldið í gær og var þar af leiðandi elduð pizza og svo smá nammi og popp meðan horft var á þegar The Fireflies duttu úr keppni í gær. Sóley Björk var ekki sátt með það enda hélt hún með þeim (spurning hvort það hafi verið sökum þess að þetta voru 3 stelpur með sítt hár og alltaf í flottum fötum) að hennar eigin sögn :) . Já hún er aðeins komin á gelgjuna :) útlit skiptir máli!!! Ég sjálf held með honum Thomas og henni Tine...á erfitt með að gera upp við mig hvort ég vilji helst að vinni :/ betra að fara að komast að niðurstöðu þar sem úrslitin eru næstu helgi!!!!

Þar sem vaninn er að laugardagskvöld eru helguð pizzugerð þá varð ég að finna eitthvað annað að elda nú í kvöld og fyrir þá sem til mín þekkja finnst ekkert undarlegt að fyrir valinu varð kjúklingaréttur. Þennan rétt hef ég ekki gert svo sjaldan og verð alltaf jafn undrandi á því hversu vel hann bragðast miðað við innihaldslýsinguna! Þessa uppskrift fékk mamma hjá Kristínu Rut vinkonu sinni fyrir nokkrum árum síðan þegar hann var á boðstólum fyrir saumaklúbbinn þeirra. Einfaldt og fljótlegt og hrikalega gott og af einhverjum ástæðum þá held ég að Inga Hlín eigi eftir að finnast þessi mjög góður Tongue out

Kjúklingur í Ítölskum/Spönskum búning

6 bringur
1/2 hvítlaukur
1/2 dl ferskt oregano
1 dl rauðvínsedik
1 dl ólivuolía
2 dl hvítvín eða vatn
2 dl sveskjur
1 dl grænar ólívur
1 dl capers
2 dl púðursykur
1 dl fersk steinselja
2 dl sólþurrkaðir tómatar


Kjúklingabringurnar settar í eldfast form og kryddaðar með kjúklingakryddinu frá Pottagöldrum. Allt maukað svo í matvinnsluvél og sett yfir bringurnar. Ofninn hitaður í 200 og sett inn í ofninn í 40 mínútur.
Borið fram með hrísgrjónum, brauði og salati.


Salat:

Rucola
mango/vínber/jarðarber (eigið val)
fetaostur


Ekki svo sjaldan sem ég gleymi að krydda bringurnar áður en ég helli gumsinu yfir en finnst það svo sem ekki breyta neitt ógurlega miklu.

Verði ykkur að góðu vinir!!

Endilega kvittið hjá mér ef þið eruð að skoða bloggið mitt og endilega látið mig líka vita ef þið prufið einhverjar af þessum uppskriftum og hvernig bragðaðist Wink


Formbrauð plús smurostur plús kók samasem morgunmaturElísa Björk Jónsdóttir

Já ég ákvað að vera "góð" við mig svona í morgunsárið. Eftir að hafa skutlað tveim eldri börnunum í skóla og leikskóla kom ég við í bakaríinu og keypti mér lítið fransbrauð og hálfan líter af kókakóla Laughing Sit svo hér og maula á þessu á meðan ég skrifa þessa færslu.

Í gær var örlítil tilraunastarfsemi í eldhúsinu í húsi númer 10 við Vinkelvej. Húsmóðirin bauð uppá tartalettur í kvöldmatinn. Ég man eftir því sem barn að mamma bauð stundum uppá þennan rétt við lítin fögnuð okkar systkina. Ég held ég geti fullyrt að ástæðan fyrir því hafi verið sú að konan þurfti að setja aspas í þessar lettur. Hún hafði reyndar, í minningunni, mikla þörf fyrir það að setja aspas í nánast allan mat. Matvandir krakkar eru að vísu snillingar í því að finna eitthvað að öllu sem borið er á borð fyrir þá og alls ekki ólíklegt að minningin sé ekki alveg hundrað prósent rétt. Svona þegar ég hugsa aðeins betur út í það þá held ég að hún hafi nú bara sett aspas í ASPASSÚPUNA sína (sem við systkinin eeeeelskuuum í dag) og svo í þessar tartalettur.

Eníveis...ég ákvað í bjartýni minni að bjóða mínum matvöndu ormum svona lúksus kvöldverð. Ég var nú samt líka raunsæ og átti jógúrt inní ísskáp. Ég var líka svo heppin að hafa fengið helling af hangikjöti um jólin og afganginn af því hafði ég skorið niður og geymt í frystinum. Uppskriftin er blanda af nokkrum sem ég sá á netinu og útkoman var u.þ.b. svona:

Tartalettur

50 gr smjör
2 msk hveiti
1 peli rjómi (ég átti ekki alveg heilan pela svo ég notaði mjólk á móti)
safinn af aspasnum
400gr hangikjöt
tartalettur (fyllingin er nóg í ca. 2 pakka)

Bræðið smjörið og hrærið hveitið útí og búið til smjörbollu. Bætið aspassafanum útí og svo rjómanum/mjólkinni þar til sósan er hæfilega þykk. Saltið og piprið eftir smekk.

Skerið aspasinn og hangikjötið í bita og blandið saman við sósuna.
Setjið í tartaletturnar og inní 200 gráðu heitann ofninn í ca. 15 mín.


Verði ykkur að góðu

Kanelgiffler!!!Elísa Björk Jónsdóttir

Heppnuðust ótrúlega vel Tongue out

Oppskriften:

1 bréf þurrger
1 dl volg mjólk
1 msk sykur
1/2 tsk salt
1 egg
100 gr mjúkt smjör
300 gr hveiti

Fylling:

60gr mjúkt smjör
60gr púðursykur
1-2 msk kanill (ég vil hafa mikið bragð, uppskriftin sagði upphaflega 1/2-1 tsk)

Blandið fyllinguna fyrst og geymið við stofuhita svo hún sé tilbúin til notkunar þegar þar að kemur!

Gerinu blandað við volga mjólkina og leyst upp.
Sykur, salt og egg pískað saman.
Gerblöndu og eggblöndu hrært saman.
Hveitinu og mjúku smjöri klístrað saman í annarri skál.
Ger-eggjablöndunni og hveitiblöndunni sullað saman og hnoðað (annaðhvort í höndunum eða fyrir þá sem heppnir eru og eiga KitchenAid að hnoða í vélinni! aðrar hrærivélar koma líka til greina Tongue out). Ath. deigið á að vera pínu blautt

Skutlið blautu viskustykki yfir skálina og látið hefast á volgum (í mínu tilfelli skellti ég hrærivélarskálinn á brenniofninn minn Laughing) stað í góðann hálftíma...ég skutlaðist til læknis með Tómas Val og í búð rétt á meðan skálin fékk að standa.

Með lítið eldhúspláss er gott að skipta deginu svo í 2 "pulsur" og fletja þær út í ca. 50cmX15-20cm.

Pískið eitt stykki egg til penslunar.

Fyllingunni er dreift yfir deigið nema skiljið eftir svona ca 2cm kant, kanturinn er svo gataður með gaffli sem er ýtrekað dýft í eggjahræringinn svo deigið festist betur saman Wink

Rúllið upp, skerið í 2 cm breiða bita, leggið á plötu og ýtið örlítið ofan á, penslið herlegheitin með eggjahræringnum og bakið í forhituðum ofni í 10mín á blæstri. Gifflurnar mega ekki verða of þurrar!!

Rosa gott með kaffinu nú eða fyrir litla lasarusa sem neyðast til þess að hanga heima hjá sér. Nú er ég með tvo svoleiðis, Tómas Valur kom heim frá pabba sínum með 38 stiga hita og heldur engu niðri. Líf og fjör á þessu heimili!!!

Kaffi í morgunsáriðElísa Björk Jónsdóttir

Það jafnast ekkert á við góðan kaffibolla þegar maður skríður á fætur. Senseo vélin stendur fyrir sínu en það væri ekki slæmt að hafa eins og svona eitt stykki sinn eigin kaffibarþjón til að útbúa einn RISA caffe latte þegar maður hunskast á fætur Wink einhver sem bíður sig fram???

Vilhlem Þór er heima í dag, lasinn enn eina ferðina og ég sem var búin að plana lestarferð inn til kbh í dag og skoða eins og eitt stykki skóla sem mig langar að komast að í í haust. En það ætti að sleppa, þeir bjóða uppá opið hús næstkomandi miðvikudag líka og þá hef ég nægan tíma til að plana barnapössun Laughing

Hérna í færslunni á undan skrifaði ég um það að skella inn uppskriftum sem ég prufa og finnst virkilega góðar og ætla ég að byrja hér með á þeirri fyrstu. Mamma sendi mér þessa fyrir ekki svo löngu síðan og er hún alveg ferlega góð, pínu sterk en ferlega góð!

Kjúklingalasagne frá Mexico:

5-6 kjúklingabringur
1/2 laukur
2 rauðar paprikur eða 1 stór
1 bréf Burrito eða Taco mix
2 dósir af Salsasósu (styrkleiki eftir smekk hvers og eins)
1/2 líter matreiðslurjómi
6 tortilla pönnukökur
rifinn Gratineraður ostur

Bringurnar eru skornar í hæfilega munnbita. Laukurinn skorinn smátt og paprikan í teninga.

Laukur og paprika steikt á pönnu uppúr smá smjöri eða olíu. Kjúllanum skellt útá pönnuna ásamt kryddmixinu og látið krauma þar til kjúklingurinn er reddý. Bætið salsasósunni og rjómanum saman við og látið malla á meðan sósan þykknar.

Takið eldfast mót og þekið með tortillapönnukökum, gætuð þurft að klippa þær eitthvað til svo þær passi betur. Svo er kjúklingnum og tortillunum raðað til skiptis, passið bara að kjúklingurinn sé síðasta og efsta lagið. Gratineruðum osti er svo dreift  yfir herlegheitin og sett í ofninn þar til hann er bráðnaður og aðeins brúnn.

Borið fram með því sem þér þykir passa!

De nada!!!!!!


Ef kanelgifflerne heppnast vel hjá mér skutla ég þeim inn á eftir!!




á maður að halda þessu áfram???Elísa Björk Jónsdóttir

Spurning hvort maður taki uppá því að blogga aðeins aftur, þó ekki sé nema til þess eins að vista inná netið uppskriftirnar mínar sem nokkrir biðja um reglulega :D u know who u are!!! heheehheheheh

og aldrei að vita nema maður láti fylgja með eins og eina og eina færslu :D

mamma og pabbi komin og farin, Erla á leiðinni og svo mamma afturElísa Björk Jónsdóttir

Mamma og pabbi voru hérna á síðustu helgi. Þ.e.a.s. mamma var hérna hjá okkur frá fimmtudegi fram á laugardag og fór þá til Sigrúnar og Ella fram á sunnudag en pabbi fór beina leið til Ølstykke til Ella á fimmtudeginum til að leika sér í golfi! Sigrún var nebblega ekki heima fyrr en á laugardeginum svo mamma ákvað að krassa hjá okkur í staðin fyrir að hanga yfir köllunum og dúllast eitthvað ein. Það var æðislegt að geta knúsað þau aðeins. Þau sáu nú svo ekki krakkana nema rétt í mýflugumynd á sunnudeginum þar sem þau höfðu verið í nokkurra daga fríi með pabba sínum. Já Guðmundur skellt sér út í nokkra daga ásamt Írisi og fengu börnin til sín nánast um leið og þau lentu. Tilhlökkunin var búin að vera mikil hjá Sóleyju Björk og Vilhelm Þór, mikið skipulagt hvað ætti að láta pabba sinn gera með sér og kaupa fyrir sig. Mest var nú samt tilhlökkunin bara að fá að sjá pabba sinn enda langt síðan síðast. Skottan var nú að velta því fyrir sér fyrir nokkru síðan af hverju við værum ekki með vængi eins og fuglar og fiðrildi, (reynið að svara því þannig að 5 ára gamalt barn skilji), "af því að þá mamma gætum við flogið bara til Íslands sjálf og heimsótt pabba og ömmu Guðný og afa Dóra og Natan Huga og bara alla sem eiga heima á Íslandi!" Ekki flókið hjá fimm ára stelpu.

Já það er mikill erill hjá okkur þessa dagana....mamma og pabbi nýfarin, Erla Perla bestasta er væntanleg á laugardaginn og ég get bara ekki beðið mig hlakkar svo til. Djamm, versla smá, jólatívolí og ERLUKNÚS!!!!  Svo nottla ætlar mamma að koma aftur í heimsókn 26. nóv. Sóley Björk er búin að panta að amma fari í náttföt og leggist uppí rúm með sér og Vilhelm Þór og lesi bækur. Það verður ekkert smá kósý. Skilst á mömmu að hún ætli bara að vera í náttfötunum allan tímann.

Fótboltinn gengur vel. Við erum komnar uppí 1. seríu og nú er stefnan sett á Kaupmannahafnar seríuna. Nú eru bara botnalausar æfingar, styrktaræfingar, tækniæfingar og allskonar æfingar. Var á einni frekar erfiðri í gær og ég er svo aum í höndunum að ég á í erfiðleikum með að lyfta þeim upp og halda á minnstu hlutum...svo eiga víst æfingarnar bara að verða erfiðari og erfiðari! OMG!!!!!

Krökkunum gengur rosa vel í nýja kennitöluskólanum og Sóley Björk æfir sig meira og meira á hverjum degi í því að tala dönsku, hvort sem er í Sommerfuglen, Leikskólanum eða hérna heima og þá er nottla litli páfagaukurinn snöggur að herma eftir henni. Þau verða farin að tala reiprennandi dönsku áður en ég veit af.

Það er sem sagt allt gott að frétta af okkur hérna og bið ég ykkur því vel að heilsa þangað til næst!

ég er nú ekki orðin svo gömul er það?Elísa Björk Jónsdóttir

Börnin tvö byrjuð á leikskóla svo nú er um að gera að fara að finna sér vinnu. Það er elliheimili hérna rétt hjá, stendur við sömu götu og fótboltaklúbburinn sem ég er meðlimur í og var ég að hugsa um að sækja um þar. Um að gera að prófa að hugsa um heldriborgarana. Þeir luma sjálfsagt á skemmtilegum ævintýrum sem þeir hafa lent í á sínum yngri árum og alltaf gaman að heyra sögur þeirra sem hafa lifað nánast alla síðustu öld og væntanlega af nægu að taka í sögusafni þeirra. Móðir mín var svo að tala við litlu systir sína um daginn, sem ég lít alltaf soldið á sem mömmu mína nr2, og var að láta hana vita af því að frumburður þeirra ætlaði nú loksins að fara að sækja um á elliheimilinu. Mömma nr.2 fannst frumburðurinn ég vera ansi fyrirhyggjusöm að ætla að sækja um á elliheimili ekki nema 26 ára gömul! hahahahahahahahahahahahaha ég er nú ekki svo fyrirhyggjusöm, held nú reyndar að mamma nr1 myndi segja að ég væri frekar andstæða fyrirhyggjuseminnar :)

Annars er bara allt gott að frétta af okkur, ég ætla að sækja um á elliheimili en ég ætla nú einungis að sækja um vinnu, ekki hæli, ekki strax.

Fótboltinn gengur ágætlega, við enduðum í 3ja sæti og munum koma til með að keppa þá um oprykning við hin tvö liðin sem voru fyrir ofan okkur. Þeir leikir fara fram 18. október og 25. október. Við erum komnar með nýjan þjálfara sem okkur líst vel á, hann hefur þjálfað Elite lið hér í Danmörku. (Elite er sem sagt úrvalsdeildin hérna) Fyrsta æfingin hans verður núna á mánudaginn svo það verður spennandi að sjá hvað hann mun láta okkur gera :) Með honum koma einnig 8 nýjar stelpur í liðið svo við munum vonandi eiga einhvern möguleika á oprykning. Læt ykkur vita hvernig það gengur. Vona bara að þetta séu stelpur sem kunna að sparka bolta og taka við honum og einnig ætti þetta að vera þjálfari sem kannski getur kennt okkur eitthvað nýtt. Það er ekki beint gaman að vera endalaust að æfa sendingar fyrir okkur sem kunna það.

Í kvöld er svo dekurkvöld hjá okkur stelpunum heima hjá Elísabetu, maski á andlitið, plokka og lita augabrúnir (ekki beint dekur en nauðsynlegt), bjór, spjall og hlátrasköll. Hlakka ekkert smá til, smá frí fyrir mig :) ég er með kjúllan í ofninum sem ég nota svo til að búa til Kjúklinga Enchilada handa okkur nammi nammi namm!

Þetta er nú nóg í bili af mér, heyri í ykkur síðar.
Elísa kokkur

Framhald.....Elísa Björk Jónsdóttir

Ansk....helv....djöf.... Já mamma þetta fannst þér fyndið! Ég hló ekki jafn mikið í gær, var búin að blogga alveg heilan helling og þegar ég ýtti á "vista" missti ég allt út!!! Ég varð ekkert smá fúl. En nú ætla ég að reyna að ráða bót á því.

Eins og ég skrifaði um í þar síðasta bloggi þá byrjaði ég eftir nokkurra ára hlé að æfa aftur fótbolta. Liðið heitir Tårnby FF ( www.taarnbyff.dk ) og erum við stelpurnar kallaðar Gullstelpurnar sökum keppnisbúninga klúbbsins. Síðastliðinn laugardag var fyrsti leikur haust tímabilsins og gekk það alveg svona ágætlega. Við náðum að spila boltanum nokkuð vel á milli okkar en það vantaði alltaf aðeins uppá til þess að ljúka sóknunum hjá okkur og fá skot á markið. Við unnum nú samt leikinn 3-2 með ykkar stelpu sem sweeper (fyrir þá sem ekki vita þá er það aftasti maður, sá sem stjórnar vörninni). Þetta er nú ekki staða sem ég er vön að spila, kannski verið sett þarna einu sinni þegar ég æfði með 3. flokknum á Selfossi. Sú staða sem ég er vön að spila er Striker ( fremsti sóknarmaður, sá sem stingur sér inn fyrir vörnina og tekur sprettinn upp að marki andstæðingana). En ég held bara að ég hafi staðið mig ágætlega sem Sweeper, að vísu soldið erfitt þar sem ég er ekki alveg búin að ná dönskunni nógu vel og þurfa að garga á stelpur sem maður er ekki alveg viss á hvað heita þar sem helmingur liðsins er ekki að æfa með okkur heldur fáum við þær lánaðar í leikina. Ekki nógu gott. Svo er ég ekki alveg með það á hreinu hvaða tungumál er talað inná vellinum svo nú þarf ég að fjárfesta í Orðabók Fótboltamannsins á Dönsku til að læra það.

Annars gengur lífið í henni Danmörku bara vel. Bjarki er á fullu að vinna á meðan ég hef verið heimavinnandi húsfrú síðan Hrefna systir fór aftur heim. Já við fengum hana með okkur aftur út í ár. Hún var ekkert smá dugleg hérna hjá okkur að passa og svo var nottla bara æðislegt að fá að hafa hana hérna hjá sér.

Haustið er gengið í garð, laufin falla af trjánum, aðeins farið að kólna í veðri....bíddu nú við..... á ekki að koma sumar á undan hausti???? Hvert fór sumarið?? Kom það kannski aldrei??? nei ég held barasta ekki. Að vísu var maí mánuður góður hjá okkur og svo nokkrir dagar í júlí eða ágúst en aðra daga minnir mig að það hafi bara RIGNT!!!!! Nú þarf ég að leggja fram formlega kvörtun til fjölskyldunnar hans Bjarka. Þau lofuðu mér heitum sumardögum nánast allt sumarið þegar ég hitti þau í fyrsta skipti vorið 2007. Nú er ég farin að hallast að því að það hafi verið bölvuð lygi og uppspuni!!!! Einungis sagt til þess að fá strákinn sinn til þess að flytja aftur út með þessa yndislegu, frábæru, ótrúlega skemmtilegu stelpu með börnin tvö, sem hann var nýbúinn að kynnast, Svalur hahahhahahahahahhahaha!!! Mér finnst að vísu ágætt að haustið sé komið....þá er orðið svo stutt í jólin!! Og ég bara get ekki beðið eftir jólunum!!! kúkú!!!

En nú að aðeins sorglegri fréttum.... föðurafi minn hann Elís Kjaran lést á þriðjudagsmorgunn eftir að hafa barist við krabbann í nokkur ár. Ég sjálf finn ekki til ofboðlegrar sorgar þannig, eins og maður annars finnur fyrir þegar einhver nákominn manni fer. Ég finn til með systkinum pabba míns og henni Kötu en ég haf vitað það í mörg ár að ég ætti ekki eftir að gráta neitt ef ég fengi fréttir af láti föðurömmu eða afa þar sem ég hef aldrei þekkt þau. Það er kannski sorgin sem ég finn fyrir. Ég þekkti aldrei þennan stórmerkilega afa minn sem annars vegar var ótrúlega skemmtilegt skáld og hins vegar snarbilaður ýtumaður sem einn síns liðs bjó til veg í Dýrafirði. Það er nefnilega þannig að föðurfjölskylda mín virðist hafa ákveðinn fatla í sér...við getum kallað það fatlað gen. Genið kallast sambandsleysi. Hægt er að útskýra það þannig að þau hafa bara ekki samband, ja, allavega hafa þau ekki haft það við mig og bróður minn. Ég hef því miður erft þetta gen og ég á mjög erfitt með að hafa samband. Og ég er alveg örugglega ekki ein um það að kljást við þennan fatla. Það virðist bara vera svo erfitt að lyfta þessu tóli og slá inn þessar sjö tölur og segja hæ. Sérstaklega ef maður hefur misst sambandið í langann tíma þá er þetta enn erfiðara. Ef það er einhver þarna úti sem þér þykir vænt um, hvort sem er vinur eða fjölskyldumeðlimur og þú hefur ekki talað við lengi en ert alltaf á leiðinni að lyfta þessu mjög svo þunga tóli og slá inn þessar sjö erfiðu tölur, ekki bíða lengur. Mamma mín var búin að minna mig á það síðustu vikur að ég ætti nú að taka upp tólið og hringja í hann afa minn, bara til að segja hæ og athuga hvernig hann hefði það en ég lét aldrei verða af því, Hjalti bróðir á hrós skilið því hann hringdi og talaði við kallinn þó erfitt væri. Látum lífið ekki stinga okkur af því trúið mér það er á harðahlaupum frá okkur ef við reynum ekki að fylgja með. Nú ætla ég á næstu dögum að lyfta þessu þunga tóli, öllum hundraðogsextíu grömmunum og slá inn þessar 00354-xxxxxxx (þar sem ég er erlendis og segja hæ við þig! 
 
Gullstelpan Elísa Björk

Blogga, Blogga, BloggaElísa Björk Jónsdóttir

I´m back in the game!!!!!Elísa Björk Jónsdóttir

Já mikið rétt!!! Haldið þið ekki að stelpan sé byrjuð að æfa fótbolta aftur eftir 7 ára pásu. Ég er búin að vera með fiðring í tánum síðustu 6 árin og í veikindum mínum um daginn var ég á gúgglinu og ákvað að athuga hvort það væri einhver kvennabolti í gangi hér á Amager fyrir svona eldri stelpur eins og mig og svona eins og fyrir örlaganna sakir komst ég að því að það er klúbbur hérna nánast í næstu götu við okkur!!! Ég mailaði bara á formanninn og fékk svar um síðustu helgi. Hann benti mér á að hafa samband við eina úr liðinu og mín nottla bara dreif í því og eftir nokkur sms á milli okkar var mín mætt á æfingu síðasta þriðjudag. VÁÁÁÁÁ hvað það var erfitt svona þol-lega séð. Ég er ákkúrat í engu formi til að hlaupa sem ég vissi nú alveg en það sem kom mér meira á óvart var að ég hef nánast engu gleymt, ég hafði pínu áhyggjur af því sko, bara eins og ég hefði ekkert hætt (fyrir utan þolleysi sem ég verð nú fljót að bæta úr). Stelpan sem ég hafði verið í sambandi við þarna nokkrum dögum áður er helvíti fín, afsakið frönskuna, og sagði einmitt við mig eftir æfinguna að það vantað eiginlega fleiri svona stelpur eins og okkur tvær, hún hefur sjálf æft í langann tíma og er með ágæta tækni en hinar stelpurnar eiga enn í vandræðum með að taka við sendingum en það verður bara að vinna í því. Liðið er ekki nema tveggja ára gamalt svo við gefum þeim séns. Stelpan þarna sem ég hafði talað við heitir Betina eða B eins og hún er kölluð er ári yngir en ég og stofnaði þennan klúbb fyrir 4 árum síðan með kærastanum síðan sem b.t.w. er formaðurinn og í fyrra ákváðu þau að reyna að starta kvennaliði og það gekk svona ágætlega hjá þeim. Í heildina eru 20 stelpur í liðinu en þetta minnir soldið á gamla Selfoss liðið mitt þar sem það voru bara nokkrar svona sem mættu á allar æfingarnar og svo hinar þegar þeim sýndist en í dag kvarta ég ekki enda er metnaðurinn kannski ekki lengur sá sama og var þá. Ég er ekkert að keppast um að komast á hærra plan í boltanum eða neitt svoleiðis eins og draumurinn var. Í dag snýst þetta meira um að leika sér og sanna fyrir sjálfri mér að ég geti þetta ennþá Svalur. Við æfum tvisvar í viku, þriðjudögum og fimmtudögum, og ég er enn aum af harðsperrum.

Undanfarna daga er búin að vera bongó blíða og í gær og í fyrradag fór ég með liðið á ströndina til að flatmaga og busla í sjónum. Krakkarnir eru sko alveg að fíla ströndina. Hlaupa í sjónum, maka sig alla út í sandi og koma svo og sulla pínu á múttuna sína og ömmu Pálu. Það að búa hér á Amager er algjör paradís. Við erum eins og ég hef kannski nefnt áður í sveitinni, kindajarm á kvöldin og rólegheit,  ekki nema 10 mínútur með strætó niður á Strikið og svo með ströndina í kannski korters fjarlægð með bíl.

Mér líður sem sagt mjög vel hér í Baunalandi og ekkert útlit fyrir að ég sé á leiðinni heim á næstunni. Endilega kíkið í heimsókn við tækifæri, tvíbreytt gestarúm og hægt að bæta við fleirum ef svo ber undir. Ein nótt kostar ekki nema glaum og gleði og á góðviðrisdögum er boðið uppá grillveislu í garðinum með varðeld og söng ef fólk vill!! Bjórinn kostar ekki mikið ef fólk hefur áhuga á að smakka mjöðinn hér í Danmörkinni en einnig er boðið uppá aðra áfenga og óáfenga drykki!!! Eina sem þú þarft að taka með er góða skapið, og fatnað sem fellur að veðurspánni það skiptið!

Kveðja,
Heimagisting Elísu Bjarkar
s: spyrjist fyrir inná msn Glottandi
Amager
Denmark

Síða 1 af 4

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

Teljari